þriðjudagur, 23. október 2007

Lif og fjör við Litla straum

Þótt að loftslagið hér i Lilleström hefur kólnað til muna upp á síðkastið þá hafa síðustu vikur yljað okkur lopaokkunum um hjartarætur. Vinir og vandamenn hafa nefninlega ekki getað fengið nóg af Lilleström (eða eru það íbúarnir sem heilla...?) og gestaherbergið verið fullbókað.

Fyrst stigu á land 3 yndisfagrir sveinar, tveir frá okkar ástkæra fróni og einn frá borg er kennd er við Gauta. Þrátt fyrir ólíkar ferðavegalengdir hjá þeim var sá síðarnefndi helmingi lengur á leiðinni þökk sé skandinavísku lestarkerfi.

Piltarnir fengu auðvitað að bera þjóðarstolt norrmanna augum, sjálfan Holmenkollen, Kalli Jói var genginn þvert og endilangt, Ákabryggja skoðuð ásamt því að póker var spilaður langt fram á nótt á Alexander Kiellandsgötunni. Næturlíf Oslóarborgar (og Lúðaström) var einnig skoðað og Sigmundur sýndi snilli sína á gítarinn okkur til mikillar ánægju.

Ekki amalegt selskap þetta .... myndarlegir! Óviðjafnanlegir herramenn hér á ferð... Takk fyrir komuna kæru piltar og komiði fljótt aftur! Ástina er að finna í Lúðaström....!

Móðir mín og faðir komu síðan í frábæra helgarferð til okkar!!

Faðir minn var með mikið prógramm enda um 20 ár síðan hann var síðast í skíðaferð hér í Noregi. Náðum við þó að uppfylla allar hans óskir og höfðum gaman af.
Við fórum meðal annars í hinn fagra Vigelandgarð þar sem þessi fína mynd var tekinn af þessari óléttu við nákvæma eftirmynd af fullvaxta fóstri..... 2 mánuðir to go....!!

Það var mjög skrýtið (sorglegt) að kveðja hjónakornin vitandi það að ég mun ekki sjá þau aftur fyrr en sú stutta ákveður að koma í heiminn, nánar tiltekið árið 2008.... það var því stutt í tárin hjá þessari óléttu við kveðjustundina á Gardemoen.

Takk fyrir komuna mamma og pabbi... það var algjör vítamínsprauta að fá ykkur!!!
Og pabbi... við bíðum spennt eftir að þú tilkynnir stofnun aðdáendaklúbbs Lúðastraums á Íslandi enda vitum við að bærinn setti sitt mark á sál þína!

Knús yfir hafið frá okkur og litlu fröken fix sem virðist vera með sparkhæfileika föður síns í blóðinu... hmm hmm!

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er aldeilis um gestagan hjá ykkur. :D
En viktor þessi gleraugu sem þú ert með á myndinni gera þig soldið lúðalegan ;o) hehe :D
en Sæt kúlan þín Álfrún og er prinsessan greinilega að dafna vel :D hlakka rosalega til að fa hana í heiminn, en verst er að þið eruð svo langt fra. En vona þið hafið það sem best :* og gangi ykkur mjög vel.

Nafnlaus sagði...

Váááá hvað þú ert yndisleg Álfrún mín.... já þú líka Viktor minn! Æðisleg mynd!
Ég sé að frænka mín er ljúf og góð við mömmusin.
Alltof langt þar til ég fæ að sjá ykkur!!!

Knús yfir hafið,
Sonja sys

Nafnlaus sagði...

Þú ert yndislega sæt með þessa bumbu elsku Álfa, hlakka mikið til að sjá litlu prinsessuna þegar hún kemur í heiminn. Vona að þið hafið það sem allra best öll þrjú.
Kveðjur
Júlía

Nafnlaus sagði...

Úfff skil þig vel að gráta við að kveðja múttu sín :(
Ég er sko farin að kvíða því strax að kveðja mína, sem er ekki einu sinni komin til min ennþá!

En bumban þín er ÆÐI ert sko án efa í BLÓMANUM sem þú varst að tala um núna ;)
Njóttu þess ;)

Knús frá Þrándheimi

Nafnlaus sagði...

Bumban er miklu flottari í raun en á myndinni! Engin lúðabumba það og það er von að Viktor reyni að setja upp skringigleraugu til að fá smááááááá athygli. Engin bumba að vísu án hans svo hann getur bara vel við unað.

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku krúttin mín. Álfa mín þú ert svo sæt.....mig langar að snetra þessa kúlu og finna kröftugu spörkin;) Æðislegt að Steinunn sé að koma, vildi að ég gæti komið líka.
Ég er byrjuð að fljúga á fullu hér í Flórída.......soldið stressandi fyrst að fá heimildir lesnar á 120 km. hraða fyrst..........en þar sem ég er þekkt fyrir að tala hratt var það fljótt að venjast.
Ég er komin með símanr. 001 407 452 2589. Við verðum að fara plana skype date.......ég er 4 tímum á eftir Íslandi......þá 6 tímum á eftir þér???.....sendu mér messó þegar.........love u long time.
Ástar-og saknaðarkveðjur,
Gyða

Nafnlaus sagði...

Elsku Ála,
Þú berð prinsessuna með svo miklum þokka!
Það er yndislegt að sjá þig á þessum myndum:)

Love you:*
Magga